Aðalvalmynd

Úrslit leikja

Staðan í deild

kmrUtandeildarliðið F.C. Ögni

Töpuðum 3-2 gegn Hjölla. Svekkjandi? Já.

Við vorum óheppnir að klára þennan leik ekki. Gott season að baki.

Bolti á sunnudaginn? Risinn - 22:00.

UFC ÖGNI vs HJÖRLEIFURUtandeildarliðið F.C. Ögni

Þá er komið að því. Hreinn og klár úrslitaleikur um sæti í undanúrslitum.

Staðan í riðlinum okkar er svona:

  Lið L U J T + - +/- Stig
1 SÁÁ 2 1 0 1 3 2 +1 3
2 Hjörleifur 2 1 0 1 2 1 +1 3
3 Kumho 2 1 0 1 3 3 0 3
4 UFC Ögni 2 1 0 1 3 5 -2 3

Glöggir menn sjá væntanlega að úrslit leikjanna tveggja (Kumho v SÁÁ, Ögni v Hjörleifur) eru óháð og því eru báðir leikirnir algjörir úrslitaleikir. Hjörleifi dugir jafntefli en okkur dugir ekkert annað en sigur.

Palli og Fróði mæta hvorugir (eru báðir í útlöndum) þannig að við þurfum að mixa markið einhvern veginn, Keli er tilbúinn að taka það að sér, amk. til að byrja með. Við sjáum hvað setur.

Þegar ljóst var að við gætum ekki spilað á laugardaginn sökum manneklu höfðum við samband við stjórn Utandeildarinnar og Hjörleif og báðum um að fá að fresta leiknum þar til Palli og Fróði kæmu til baka, s.s. næsta þriðjudag, miðvikudag eða fimmtudag. Hjölli tóku það ekki í mál þar sem þeir vildu spila á laugardeginum en við tókum það ekki í mál þar sem að rúmlega hálft liðið hefði forfallast.

Niðurstaðan er sú að leikurinn verður á sunnudaginn, væntanlega klukkan 18:00.

Hverjir geta mætt? Við þurfum að hafa það algjörlega á hreinu hverjir koma og hverjir komast ekki.



#14

Ögni - KumhoUtandeildarliðið F.C. Ögni

Ögni vs Kumho

Kórinn kl 18:00 sunnudaginn 27.09

Skyldusigur

Mæting klukkutíma fyrir leik helst.

Hverjir eru til?

Fyrsti leikur í milliriðlumUtandeildarliðið F.C. Ögni

Jæja börnin góð.

Vona að það hafi ekki farið framhjá neinum að við erum komnir í milliriðil. Fyrsti leikur á morgun (sunnudag).


UFC Ögni v Sáá - Kórinn - 16:30.
Leikurinn er svona snemma af því að þetta er sjónvarpsleikur.


Við fórum yfir styrkleika og veikleika þeirra á vídjófundinum í gær þannig að það þarf ekkert að ræða það neitt meira hér.

Mæting á skikkanlegum tíma, helst ekki seinna en 45min fyrir leik.


Hverjir mæta?

ÚrslitakeppniUtandeildarliðið F.C. Ögni

Flottur leikur á miðvikudaginn. Hefðum getað gert þetta auðveldara en stundum er gaman að hafa smá spennu í þessi.

Það er komið leikjaplan fyrir úrslitakeppnina. Leikdagar eru eftirfarandi:

1. umferð í milliriðlum
19. og 20. september

2. umferð í milliriðlum
26. og 27. september

3. umferð í milliriðlum
3. og 4. október

Undanúrslit
10. október

Úrslitaleikur og 3. sæti
17. október


Fyrsti leikur okkar í þessari úrslita keppni er:

Sunnudagurinn 20. október - Kórinn
Kl. 16:30 Fc Fame/UFC Ögni vs. SÁÁ

Við vorum nokkrir sem fylgdumst með síðustu leikjunum hjá SÁÁ í deildarkeppninni og þeir eru nokkuð sprækir. Sérstaklega er hægri kannturinn hjá þeim helvíti snöggur. Hann feikar samt alltaf til hægri og sækir inn á miðjuna þannig að Gummi kæró þarf bara að loka á miðjuna.  Svo þurfum við að vera grimmir að stinga boltanum innfyrir vörnina. Þeir spila með mjög flata vörn og það er yfirleitt mikið bil á milli miðvarða. Ef við nýtum okkur þetta og stingum á milli þeirra þá ætti þetta að vera given.

Við tökum á því á æfingunni í kvöld og förum svo betur yfir video'ið á töflufundinum hjá Jóa á morgun.

kv. #0

Leikur Á morgunUtandeildarliðið F.C. Ögni

Fyrir þá sem eru alveg heiladauðir þá tilkynnist þeim hér með að það er umspilsleikur um að fá sæti í úrslitakeppninni á morgun, hinir vissu það fyrir.

Sjálfur er ég búinn að fara inn á utandeildarsíðuna daglega og búinn að skoða bloggið hjá öllum hinum liðunum. Eftir því sem ég sá þar þá ættum við að fara létt í gegnum þetta prógram þar sem að öll hin liðin eru að æfa 4-5 sinnum í viku og verða löngu sprungin þegar það kemur að sjálfum leikjunum.

Við vitum það samt sjálfir að ef við mætum ekki með rétta hugarfarið þá getum við tapað fyrir hverjum sem er, sama hversu góðir eða slakir, undirbúnir eða óundirbúnir andstæðingarnir eru.  

Það er ekki bara skyldumæting á morgun heldur er skyldusigur því að það er ekki séns að ég nenni að detta út úr þessu móti í umspilsleik um sæti í úrslitakeppninni, það er hugsanlega glataðasta leiðin til að enda mótið. Þess vegna þurfa allir að mæta útúr tjúnaðir og það er algjörlega frjálst hvernig menn tjúna sig upp.

Andstæðingur:  FC Fame
Staður:            Framvöllur
Mæting:           18:00     <-------- ATH!!!! Mæting klukkutíma fyrir leik.
Leikur:            19:00


Ég vænti þess að sjá komment frá öllum.

Kveðja, #17

UFC Ögni lætur til sín taka á leikmannamarkaðinumUtandeildarliðið F.C. Ögni

Já, þið lesið rétt.

Þegar UFC Ögni misstu Brynjar Úlfarsson, hinn skæða framherja, til liðs í dönsku utandeildinni hefur félagið leitað jafnt dag sem nótt að eftirmanni hans. Og nú hefur leitin loksins borið árangur.

Nýji framherjinn ber nafnið Brynje Ulfesen og kemur frá danska stórliðinu UFK Øgne. Hann er 22 ára gamall og á að baki um 30 leiki með U-21 liði Dana. Leikstíll hans er keimlíkur leikstíl Brynjars og því ætti það ekki að taka hann langan tíma að aðlagast leikstíl liðsins. Kaupverð hefur ekki verið gefið upp en það er talið vera rúmir tveir milljarðar króna.

Ulfesen er kominn með leikheimild og verður kynntur fjölmiðlum á blaðamannafundi fyrir leik UFC Ögna næstkomandi miðvikudag.

jæja drengirUtandeildarliðið F.C. Ögni

Æfing í kvöld. eigum við ekki að reyna að ná góðri mætingu ?

UMSPILSLEIKUR VS FC FAMEUtandeildarliðið F.C. Ögni

Þá er það komið á hreint.

Miðvikudaginn 16. september mætum við FC FAME í umspilsleik sem sker úr um hvort liðið kemst í milliriðil. Það þarf vart að tíunda mikilvægi þessa leiks fyrir neinum í liðinu þannig að við skulum bara sleppa því.

16.09.09 - FC Fame v UFC ÖGNI - Framvöllur - 19:00

---

Næsta mál á dagskrá er þá væntanlega mölvun um helgina. Gunni ætlaði að skaffa þaki yfir höfuðið þannig að ég hvet ykkur alla til þess að andskotast til þess að kommenta við þessa færslu hvort þetta shitt sé af eða á.

Peace out.

2-0 + djammUtandeildarliðið F.C. Ögni

Jammmm.

Unnum Keppnis 2-0 í mögnuðum leik. Leikurinn var magnaður fyrir þær sakir að hann var spilaður á grasi og því var þetta sennilega leiðinlegasti leikur sumarsins fyrir áhorfandann en sá skemmtilegasti fyrir leikmanninn.

Bottomline, Gummi Kæró og Keli Kriss með mörkin í góðum sigri.

---

Næst á dagskrá er umspilsleikur við FC FAME. Ef við vinnum þann leik þá fáum komumst við í milliriðil þar sem andstæðingarnir eru Hjörleifur, SÁÁ og vinir okkar í Kumho. Dagsetning á Fame-leikinn er ekki komin en ég posta henni um leið og ég veit eitthvað.

---

Annars heyrist mér á mönnum að menn séu til í smá skrall saman. Hvernig er staðan á mönnum næsta laugardag? Torres ætlaði að plögga djammpleisi niðrí 101 þannig að nú þurfa menn bara að gjöra svo vel að melda sig í kerfinu.

JammmUtandeildarliðið F.C. Ögni

Mættum 5 í bolta á sunnudaginn. Það var stuð.

Henson-leikurinn var gefinn og það suckaði pínu. En hvað sem því líður þá eigum við einn leik eftir í riðlinum og hann er á móti Keppnis. Þessi leikur skiptir okkur engu máli upp á stöðuna í deildinni en þeir geta hækkað sig upp um eitt sæti með stigi gegn okkur. Ég legg til að við mætum samt rétt stilltir í þennan leik.

Svo er það staðfest að við fáum FC Fame í umspilinu. Þeir eru með hörkufínt lið. Við spiluðum æfingaleik við þá í vor og þeir unnu okkur 2-1 ef ég man rétt.

Allavega, bolti á sunnudaginn ef það er áhugi fyrir því. Og svo leikur á mánudaginn 7. september klukkan 19:00 á HK-velli. Klárum þetta dæmi.

Endilega tjáið ykkur.

Leikur á morgunUtandeildarliðið F.C. Ögni

Jæja.

Töpuðum gegn Elliða. Persónulega langaði mig hvort eð er ekkert að vinna og eiga tækifæri á því að taka Hauka U í ósmurt í úrslitaleik..........

Leikur á morgun

Ögninn okkar gegn Hensonum á Fjölnisvelli kl 21:00. Mæting á skikkanlegum tíma.

Hverjir hyggjast mæta?

ps. Hvernig líst mönnum á, svona fyrst við erum komnir í úrslitakeppnina, að taka svona eins og eitt ærlegt liðsfyllerí? Held að það gæti verið þjóðráð að taka smá team spirit amerískt liðsþjapp. Eða hvað? Einhverjir sem eru tilbúnir að leggja fram húsnæði á allra næstu vikum?

kv - Arnar

Undanúrslit í BikarUtandeildarliðið F.C. Ögni

Jæja gullin mín þá er komið að því. Í kvöld eigum við leik við drengina í Elliða.

Nú er bara að duga eða drepast. Það væri snilld að komast í úrslit á okkar fyrsta ári   

Mæting kl 20:15

Í kórnum

Eru menn ekki rétt stemmdir ?

Sunnudagur + Undanúrslit í bikarUtandeildarliðið F.C. Ögni

Léttur bolti á sunnudaginn í Risanum kl 10. Hverjir mæta?

Leikur á mánudag í bikarnum gegn Elliða kl 9. Mæting í Kórinn korter yfir 8. Hverjir mæta?

Skuldir liðsmanna ágúst 2009Utandeildarliðið F.C. Ögni

Eins og fyrri mánuði tróna skuldakóngarnir Keli og Ívar á toppi skuldalistans og ekkert virðist geta velt þeim úr sessi.
Nokkrar breytingar eru á listanum frá síðasta lista og ber þar helst að nefna að millivigtarskuldarinn Svavar er orðinn skuldlaus og smáskuldarinn Gunni gerði einnig hreint fyrir sínum dyrum og óska ég þeim báðum til hamingju með það.


Skuldalisti ágúst 2009:

Keli Krist - Mótsgjald + Búningur + ÆL Fame = 15500 kr

Ívar - Mótsgjald + Búning = 15000 kr

Gunnar Óli - Búningur = 5000

Ari Magg - Búningur = 5000 kr

Addi - ÆL Fame = 500 kr

Andri - ÆL Fame = 500 kr

Binni Bjö - ÆL Homer = 500 kr

Palli - ÆL Homer = 500 kr

Eysteinn - ÆL Homer = 500 kr

Fannsi Gumm - ÆL Fame + ÆL Homer = 1000 kr

 

kv Binni

Leikur á morgun + LeikjaplanUtandeildarliðið F.C. Ögni

Hæhó.

Leikjaplanið fyrir restina af sumrinu er komið til okkar.

Það hljóðar svo:

18.08   Kórinn Kef FC UFC Ögni 21:00 Deild
24.08   Kórinn UFC Ögni Elliði 21:00 Bikarkeppni
27.08   Fjölnis Henson UFC Ögni 21:00 Deild
07.09   HK UFC Ögni FC Keppnis 19:00 Deild
             
Ef vel gengur mun bætast við þetta úrslitakeppni (allt að 4 leikir) og úrslitaleikur í bikar. Allt í allt gætum við átt 9 leiki eftir. Þannig að núna er að duga eða drepast. Reynum nú að lengja sumarið aðeins hjá okkur.

Næsti leikur er s.s. gegn Kef FC á morgun kl 21:00 í Kórnum. Mæta 20:15. Tilkynnið endilega ef mönnum seinkar. Stillið mánudagsdrykkjunni og heitapottssetunni í hóf því við eigum harm að hefna. Sigur í þessum leik fer langa leið með að tryggja okkur sæti í úrslitakeppninni.

Í stuttu máli:
4-9 leikir eftir.

Leikur á morgun, þriðjudaginn 18. ágúst,
vs Kef FC
Mæta 20:15 í Kórinn.

Kv, týndi sweeperinn.

Æfing í kvöldUtandeildarliðið F.C. Ögni

Æfing í kvöld kl 10

Endilega skráiði hverjir ætla mæta í kvöld.

Það væri gaman að geta verið sem allra flestir í kvöld þar sem við eigum alvöru leik gegn FC Kef á þriðjudag

kv. Fróði

Tilfærslur í leikjaplaniUtandeildarliðið F.C. Ögni

Hæ sætu strákar.

Ég var að fá e-mail frá stjórninni sem hljóðar svo:

sælir

leikir sem áttu að fara fram 23.08.09 á Fjölnisvöllur
UFC ögni vs FC Keppnis
RWS vs FC Björninn

Hafa verið færðið til 24.08.09
UFC Ögni vs FC Keppnis 19:30 (Fjölnisvöllur)
RWS vs FC Björninn 21:00 (Fjölnisvöllur)

Kv Stjórn

Langaði bara svona að sýna ykkur þetta.

8-liða í bikarnumUtandeildarliðið F.C. Ögni

Jammjamm.

Leikur í bikar á morgun (sunnudag) gegn TLC. Þetta eru víst einhverjar kempur þannig að enn og aftur er mælt með að menn mæti rétt tjúnaðir í leikinn. Sniðugt gæti verið að sleppa síðasta bjórnum í kvöld og endilega fara snemma upp úr pottinum á morgun. Allavega ekki mæta soðnir í leikinn. Það er að miklu að keppa strákar.

Bikarinn 09.08.09 19:00 UFC Ögni TLC Ásvellir

Mæting á skikkanlegum tíma (korter yfir 6).

Hverjir mæta?

Leikur gegn RWSUtandeildarliðið F.C. Ögni

Á morgun miðvikudag er leikur gegn RWS. Við erum búnir að keppa við þá þrisvar áður og unnið þá nokkuð sannfærandi og við ætlum að halda því áfram. Ég nenni ekki neinu helvítis vanmati eins og í síðasta leik. Nú vil ég að menn skrúfi aftur á sig hausinn eins og fyrir bikarleikinn og hafi það sem reglu að tékka fyrir alla leiki hvort að hausinn sé ekki vel hertur.

Hver:  RWS

Hvar:  Ásvellir

Hvenær: leikur hefst 19:30.  MÆTING 18:45

Ég veit að ég hef ekki verið barnanna bestur í þessum mætingarmálum en ég vona að allir mæti tímanlega. Það skiptir svo miklu máli upp á stemmningu og skipulag að vera allir saman í klefanum og spjalla soldið fyrir leikinn.

Allir að kommenta hvort að þeir komist eða ekki!!!!!


kv. #17
Síða 1 af 4

Undirsíðukubbur

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Gagnasafn

Teljari